Sérsniðin Næringarþjálfun
Sérsniðin Næringarþjálfun
Hversu vel skilur þú næringu?
Við borðum á hverjum degi, og því skiptir öllu máli að vita hvað við setjum inn í líkamann okkar og hvernig það hefur áhrif á orku, heilsu, árangur og daglega vellíðan.
Alhliða næringarþjálfun sameinar sérsniðið matarplan, fræðslu, daglegar venjur og
hugarfarsþjálfun, svo þú færð heildarnálgun sem styður þig í að líða vel, og hafaþekkinguna til þess að ná og viðhalda árangri.
Hvað er innifalið?
Matarplanið er sett upp eins og matseðill. Þú færð nokkrar hugmyndir fyrir morgunmat,
hádegismat, millimál og kvöldmat. Allt með næringarríkum mat sem þér finnst góður. Þú færð
matarplan sem byggir á:
- Þínum markmiðum
- Þinni daglegu rútínu
- Þínum óþolum og matarsmekk
- Þínum áskorunum
Allt sett upp á einfaldan, bragðgóðan og raunhæfan hátt, svo þér líði sem best
Þú borðar alla daga, og því er lykilatriði að skilja og vita hvernig næring virkar, en hversu vel
skilur þú næringu? Þú færð aðgang að fræðsluefni sem kennir þér AF HVERJU og HVERNIG
næring virkar, svo þú getir stýrt eigin árangri og vellíðan til framtíðar.
Þú færð fræðslu um:
- Hvernig líkaminn bregst við mismunandi mat.
- Hvernig á að lesa á næringargildi og vita hver besti valkosturinn er
- Hvernig þú stjórnar hungri, orku og blóðsykri
- Hvernig þú nærir þig fyrir þín markmið og vellíðan.
- Hvernig þú byggir upp heilbrigt samband við mat.
Þetta er þekking sem skiptir öllu máli og fylgir þér alla ævi.
Hugarfarið er það sem skiptir mestu máli í að ná árangri. Þú getur ekki orðið besta útgáfan af
þér ef þú ert ekki með rétta hugarfarið. Í rauninni er þetta mikilvægasti parturinn af þjálfuninni.
Hugarfars námskeiðið er í myndbands formi og stuttar æfingar fylgja með. Við vinnum með:
- Sjálfstraust
- Sjálfsaga og sjálfsþekkingu
- Skipulag og rútínu
- Að byggja upp venjur sem styðja þig í að verða besta útgáfan af sjálfum þér
- Hvernig þú viðheldur árangri.
- Hvernig þú gerir hlutina þó þú nennir ekki
Flestir líta þó framhjá því að styrkja hugafarið sitt og einmitt þess vegna ná ekki markmiðunum
sínum og gefast upp. Maður kemst aldrei lengra en hugarfarið sitt.
Vikuleg check-ins tryggja að þú sért á réttri leið, líðir vel, fáir stuðning og aðlögun þegar þarf,
sem gerir árangurinn stöðugan og varanlegan. Þú skilar inn stuttum spurningalista hvernig vikan
gekk og færð feedback tilbaka. Í hverri viku:
- Förum við yfir hvernig þér gengur
- Skoðum hvernig þér líður
- Stillum planið eftir þörfum
- Tryggjum að þú sért á réttri leið
- Stuðningur og pepp
Með þessu ertu aldrei ein í ferlinu, þú færð stöðugan stuðning og framfarir
Daily Habit Tracker gerir venjurnar sýnilegar, heldur þér ábyrgum og tryggir að litlu skrefin
safnist saman í varanlegan árangur. Þú fylgist með:
- Matarvenjum
- Vatnsdrykkju
- Svefni
- Líðan
- Orku
Þú færð aðgang að appi þar sem öll þjálfunin fer fram og heldur utan um allt sem þú þarft á
einum stað. Appið hefur marga gagnlega eiginleika eins og t.d:
- Æfingaskráning og sjálfvirkur hvíldar timer milli setta
- Árangursyfirlit
- Matarinnskráning, strikjamerkjaskanni og macros tracker
- Beint spjall við þjálfara
- Og mikið fleira
Það er einfalt í notkun, alltaf við höndina og gerir þjálfunina bæði skemmtilega og þægilega.
Ég er með þér allan tímann – spurningar, pepp, leiðbeiningar, hvað sem er.
Þú ert aldrei ein í þessu.
Auka innsýn, pepp, fræðsla og extra content sem er bara fyrir kúnna
Auka innsýn, pepp, fræðsla og extra content sem er bara fyrir kúnna
Hvernig virkar þjálfunin?
Í upphafi næringarþjálfunar tökum við símafund þar sem við förum yfir markmiðin þín, hvað þú
vilt fá út úr þjálfuninni, hvaða matur er í uppáhaldi hjá þér, hvaða áskoranir þú stendur frammi
fyrir og fleira sem tryggir að þú verðir sem ánægðust
Út frá þessum fundi færð þú sérsniðið matarplan sem byggir á þínum markmiðum, daglegri
rútínu og matarsmekk, hvort sem það er að minnka fitu, styrkjast, bæta heilsu, auka orku eða ná
öðrum markmiðum. Planið inniheldur fjölbreyttar og raunhæfar hugmyndir sem passa inn í
lífsstílinn þinn.
Þú færð einnig aðgang að appi þar sem öll næringarþjálfunin fer fram, þannig að þú getur skráð
matinn þinn, fylgst með árangri og fengið leiðsögn í gegnum allt ferlið.
Þegar allt hefur verið sett upp og sniðið að þér er þó alltaf hægt að breyta einhverju, ef þú ert
ekki fullkomlega ánægð eða ef aðstæður og markmið breytast.
Ég vinn með þér í 1, 3 eða 6 mánuði og hjálpa þér að skilja næringu og byggja upp rútínu sem
gefur orku, vellíðan, jafnvægi og sjálfstraust.