About
Hafdís Eva | You Glow Training
Ég heiti Hafdís Eva og er einkaþjálfari og stofnandi You Glow Training. Markmið mitt er að hjálpa stelpum og konum að finna og sjá mun – bæði líkamlega og andlega – og læra hvað raunverulega virkar til þess að ná markmiðunum sínum og líða betur en nokkru sinni fyrr
Ég hef alltaf elskað að hreyfa mig. Ég hef verið að lyfta í sjö ár, og æfði sund í 10 ár sem lagði grunninn að aga, úthaldi og þrautseigju sem ég hef nýtt mér alla tíð síðan. Á þeirri vegferð hef ég sjálf unnið með bæði einkaþjálfurum og næringafræðingum en ég fékk aldrei þann árangur eða skilning sem ég óskaði eftir.
Árið 2023 flutti ég til Danmerkur, þar sem ég lauk námi í einkaþjálfun, og þar kviknaði löngunin til að skapa eitthvað meira en bara æfingaprógram – ég vildi búa til þjálfun sem hjálpar fólki að bæta sig innan frá
Stuttu eftir að ég lauk náminu ákvað ég að taka þátt í 75 Hard áskoruninni, og sú reynsla breytti öllu fyrir mig. Hún kenndi mér hvað raunverulega þarf til að ná árangri. Ég sameinaði reynsluna mína, hreyfingu, næringu, svefn, hugarfar og vellíðan, og mér hefur aldrei liðið betur.
Eftir þessa upplifun vissi ég að ég vildi deila þessari tilfinningu með öðrum – og þannig varð You Glow Training til 
Mitt stærsta markmið sem þjálfari er að konur upplifi tilfinninguna sem heilbrigður lífsstíll gefur – alvöru vellíðan, orku, styrk, gleði og sjálfstraust. Ég vil að þær læri á eigin líkama, öðlist þekkingu á næringu og líkamsrækt og geti nýtt sér þá reynslu og kunnáttu út lífið
Það sem aðgreinir mig frá öðrum er nálgun mín. Ég legg ekki bara áherslu á æfingar og næringu, heldur líka hugarfar, sjálfstraust og jafnvægi. Ég trúi því að líkamlegar breytingar byrja í hugarfarinu, og þegar þú hefur trú á sjálfum þér og gefst ekki upp, verður árangurinn bæði sýnilegur og varanlegur
Ef þú ert tilbúin að hætta að giska, fá raunverulegan árangur og loksins líða betur en nokkru sinni fyrr – þá er þetta your sign 
Skráðu þig í You Glow Training – þú munt finna mun, og þú munt sjá mun
Loves: Spending time with family and friends, being with her dog Dulce, practicing mind–body sports like freediving, swimming, and Pilates, reading inspiring books, and traveling to explore different cultures.
Level Up with Coach Hannah

Train Smarter, Not Harder
Get expert-built workout programs tailored to your goals, whether you’re starting fresh or pushing limits.

Track Progress
Easily log workouts, reps and sets to see real-time progress and stay accountable every step of the way.

Fuel Right
Log your meals and make informed food choices to support your fitness and overall health.